bootylicious

*djammdrósin*

18.06.2007 15:38:40 / anna

sumarfríið að klárast:(

Ohhh! Nú fer fríið mitt að verða búið!! það er svo stutt og í raun er dagurinn í dag fyrsti dagurinn sem mér finnst ég vera í fríi! er ekki enn farin úr náttfötunum og lá uppí rúmi að lesa og dorma á víxl til kl 14:00. Og svo byrja ég að vinna á morgun... mig langar í lengra frí!! Af hverju gerir maður alltaf eikkað svona að maður fer í frí, en er jafnvel enn þreittari eftir fríið! ég er búin að vera að missa mig í vinnu í íbúðinni og er komin með vöðvabólgu og svo var rosa aksjón um helgina, útilega og grillveisla með vinnunni og svo 17 júní í gær.... ekki það að helgin var rosa skemmtileg, og æðislegt að komast aðeins út úr bænum og svona...

En hvað gerðist ekki á laugardagskvöldið.....

  • grillveisla með vinnufélögunum mjög vel heppnuð
  • farið í bæinn í fyrsta skipti eftir að reykingabannið tók við, fannst það allveg ágætt:)
  • það var ráðist á stelpu sem var að vinna með mér á dansgólfinu á Hressó
  • sá kynskipting skottast um á kvennaklósettinu lyftandi pilsinu sínu til að skoða rassinn á sér í speglinum, og sagðist vera dansari á Goldfinger og vera með lesbískri stelpu se hafði keypt sig fyrir kvöldið...úfffffff
  • Kristín týndi símanum sínum og myndavélinni
  • hitti Hildi og Eddu á Sólon.. skrautlegt ástand
  • leið eins og dýri í búri þegar maður fór á reykingasvæðið með píunum á sólon
  • sumir drápust standandi......... bara fyndið!

Svo var 17 júní í gær.. ágætur dagur en frekar rólegur samt.. fór aðeins í bæinn um kl 4-6 og fengum kaffi og kökur með familíunni hans Hákons á tjarnarbakkanum. Fórum svo heim og kúrðum yfir Die Hard 2 og Jói Afmælisbarn joinaði... rosa nice svona í þynnkunni...

 

En VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!!!!! ég er ekki allveg að ná því að Kristín vinkona mín er að fara að verða mamma á morgun!! hlakka ekkert smá til að sjá litlu stelpuna! og er líka alltaf að átta mig á því meir og meir að systir mín er að fara að verða mamma í lok sumars.... það er ekki langt þangað til... þá verð ég Anna frænka:) en fyndið!:)

allavega kem ég með fréttir flótlega hvernig allt hafi gengið:) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 18:57:10 / anna

Sumarið er komið:)

Vááá hvað það er gott veður! Þvílíkt nice að byrja fríið sitt svona! Ekki það að það sé hægt að kalla þetta mikið frí , en samt ein vika sem ég er ekki föst í vinnunni 8)

Það sem helst er að frétta er að við erum búin að fá íbúðina afhenta og mikil vinna í gangi þar áður en við flytjum.. Erum búin að spasla og spasla og rífa niður 2 veggi og mála stofuna, byrjuð á veggfóðrinu og svo er baðherbergið allt í vinnslu. Það verður geggjað flott með upphengdu klósetti og mósaik og vask sem er skál á baðborðinu:) Þetta á vonandi eftir að verða rosa flott:)

3 helgina í maí skelltum við parið okkur svo í sumarbústað í Svignaskarði, áttum þar rómantískt föstudagskvöld og fjörugt laugardagskvöld:) nánustu vinunum var boðið í grill og pott og heppnaðist kvöldið rosa vel:) Svo á sunnudeginum kíktum við svo í heimsókn á Bifröst í mat hjá Hildi og spiluðum fram á kvöld. Vel heppnuð helgi í alla staði

Svo tók næsta sumarbústaðaferð við næstu helgi sem var ekki af verri endanum, fórum til Pabba og Láru í bústað rétt við Laugarvatn.. fengum rosa góðan grillmat og fórum í pottinn:) Við eyddum í raun mestum tíma þar í spil sem heitir KUBB og er allger snilld:) þetta er leikur sem víkingarinir spiluðu til að stytta sér stundir, semsagt með að henda spítukubbum í aðra og sá sem nær aðslá út  alla kubbana hjá hinu liðinu fyrst vinnur.. Allveg ótrúlega miklu skemmtilegara en það hljómar:)

En annars var mín bara að sækja um hjá Bifröst............... ekki það að ég fari pottþétt ef ég kemst inn, því þetta liggur allt á Hákoni og ef hann ákveður að fara frekar í HR þá verður ekkert úr þessu sem er líka allveg ágætt því ég er sko langt frá því að vera komin með leið á vinnunni sem ég er í.. en ég læt ykkur vita:) 

takkogbless:) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 17:11:39 / anna

Salt og pipar!

Kominn tími á eina færslu ehaggi??

Mikið búið að vera í gangi síðustu daga, 2 ára afmæli skötuhjúsins, útskrift frá sveinafélaginu,sbr fékk sveinsbréfið mitt, Árshátíð Hár Sögu, og djamm með súpergenginu um helgina.......

Fórum á 2 ára afmælinu okkar út að borða á Rauðará steikhús,namminammmmmmmm... það var ekkert smá fínt, vorum fyrsta borðið inn á staðinn svo við fengum besta borðið í húsinu og vorum allveg útaf fyrir okkur:) Við fengum humarsúpu í forrétt, lamb eða naut í aðalrétt og svo geggjaða köku í eftirrétt:) svo var drukkið hvítt og rautt með og við sátum og spjölluðum í 3 klst. Rosa kósý. Svo röltuðum við niðrá regnboga í von um gott bíó, og enduðum á Pathfinder, sem er by the way ein kjánalegasta mynd sem ég hef séð...! Um einhverja víkinga sem tala íslensku , nema það var greinilega ekki nógu flott að fá íslendinga til að leika í myndinni ... og ekki allveg málið skal ég segja ykkur að hlusta á bandaríkjamenn reyna að tala íslensku.. meira eins og þeir væru eikkað eftirá... dáldið kjánó!!! En annars allveg brilliant kvöld:)

Á mánudeginum fyrir 1 maí var svo árshátíð Hár Sögu og Hótel Sögu, og var stemming allan daginn í vinnunni og allir í rokkaraþema yfir daginn. Svo eftir vinnu skellti liðið sér í pottinn á Mecca Spa og drukkum blush og bjór í rólegheitunum.. Píurnar gerðu sig svo til saman á stofunni redý með silfur og ís þemað og komu svo allt of seinar á árshátíð.. eða á maður að kalla það fashionably late.. hehe. þar var svo borðaður geggjað góður matur og skemmtiatriði og happadrætti og Geir Ólafs... alltaf flottur..hehe. Svo þurfti Anna panna náttla að taka smá múv við matarborðið og hella rauðvínsglasi yfir hvíta kjólinn sinn eins og engum öðrum er lagið!!!(sjá myndir hehe) Alltaf flottust! og er ekki að tala um einhvern lítinn blett heldur var mín eins og hún hefði farið á c.a. fimmfaldann túr bara allt íeinu svona bara því það var árshátíð..:lol: Mín í svaka sjokki gríp næsta saltstauk sem ég finn og fer að úða á kjólinn.. og úða og úða.. svo finn ég að það er eikkað dúbíus lykt af saltinu .. hurru helduru ekki bara að mín hafi ekki verið að strá hvítum pipar á kjólinn sem gerir náttla ekki neitt.. þá fór ég að strá allvöru salti og hellti svo smá hvítvíni yfir blettinn, og Anna þessi reynda húsmóðir nær náttla bara megninu af blettinum úr.. svo var það náttla bara beina leið niðrá stofu að worka smá blásara á blauta kjólinn... Svo var ferðinni heitið down town og liðið skellti sér velkryddað á hressó, djammaði og djúsaði langt fram á nótt og svo auddað einn nonni fyrir svefninn

hurru svo var svaka djamm með súpergenginu á laugardaginn seinasta..elduðum sama geggjað gott kjúllasalat og svo var mega hellun og take it away... langt fram á nótt. meira um það á súpergengissíðunni okkar..

enn allavega nenni ekki meir og þetta er allveg nóg fyrir ykkur.. hehehehe

ps. er orðin allveg ljóshærð!


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 00:51:03 / anna

MYNDIRNAR KOMNAR INN FRÁ ENGLANDI OG LONDON:)

Myndirnar eru loksins komnar inn:)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 21:48:31 / anna

Allright!

Jæja jæja, erum búin að kaupa íbúð!!! Allveg geggjað sæta á Njálsgötunni.... 2 herbergja 61 fm íbúð með svölum.. líka geggjuð staðsetning:) Við fáum afhent í byrjun júní og svo verður mega innflutningsparty í júní eða júlí...BARA COOOOOOL!!!!!!

Mín er annars nýlent frá Englandi... var í geggjað fínni ferð með familíunni hans Hákons.. Vorum í eina viku á síkjabát að sigla um sveitir Englands og það var bara cool og geggjuð afslöppun, veður misgott, en samt náði ég að brenna svona líka geggjað flott að það var hjarta á bringunni minni! svo fórum við til London Baby, og við fengum geggjað fínt veður þar.. Mér til mikillar mæðu var lokað í öllum flottu búðunum á Páskadag, þannig að ég fékk bara nokkra tíma í verslununum.... verslaði bara í H&M á Kensington High Street einu sinni og eyddi einhverjum 3 tímum þar, hélt nebbla að ég myndi geta verslað eikkað á sunnudeginum.....ohhh hvað ég var sár!! langaði svo í URBAN OUTFITTERS og TOPSHOP... En ég er líklegast að fara fljótlega aftur svo það er smá huggun...hehe!!

Var eikkað að reyna að henda inn myndum, en þær eru of stórar svo þetta er eikkað klúður... reyni seinna að laga og skella inn fleirum...;)

 

heyrumst seinna:)

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 01:49:59 / anna

Kisi sem drekkur Hvítvín!

Dáldið síðan ég henti inn færslu... það er vegna þess hvað það er rosalega mikið búið að vera að gera hjá mér!!!

Það sem er stærst í fréttum er að mín og Hákon erum búin að vera á fullu að skoða íbúðir!! Við erum nebbla komin með ógeð af að vera alltaf í leigu, alldrei að vita hvað við höfum langan tíma í hverri íbúð og hvenar við þurfum að fara að koma okkur í nýja leigu. Við erum semsagt búin að vera að skoða og skoða og fundum bara dáldið fína íbúð á Njálsgötunni sem við erum bara mjög spennt fyrir. Og hvað haldiði nema að við Vorum bara að enda við að gera tilboð áðan!!!!!!!!!!

Vá stressið samt sem kemur yfir mann! maður er búinn að vera að heyra svo miklar hryllingssögur um fólk sem hefur tekið lán og svo hækkar lánið svo mikið en ekki íbúðin og enda á að koma út í mínus! Ég vill ekki lenda í því!!! Það er bara að vona að verðbólgan verði góð við mann!!

En já við fáum svar við tilboðinu á morgun og ég bíð spennt, býst samt við að fá móttilboð og við erum alveg viðbúin því:) Vona að allt fari vel;)

En allavega verð að fara að henda mér í bólið því ég er að fara að vinna á morgunn. Alltaf að vera dúleg!

PS held að kisan mín sé Alkahólisti. Vissi að henni fyndist bjór góður, en mér brá dáldið þegar hún sleikti útum yfir hvítvíninu mínu! Og fékk sér gott smakk þegar mín var frá!

 

 

Annzypannz


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 17:16:34 / anna

nýjar myndir komnar!!

Nú er allt gott að frétta, vikan búin að líða rosa hratt en ekkert merkilegt að segja frá....

Í gær var rosa fínt í vinnunni og svo eftir vinnu var party í Gyllta Kettinum sem var svaka fjör, við skelltum okkur þangað og komið fullt af flottum nýjum fötum þar... svo fóru nokkrar okkar á Vegamót og fengum okkur að borða. Aldrei er maður nú svikinn þar og við fengum öll allveg geggjaðan mat. svo var farið snemma að sofa því vinnan beið svo morguninn eftir

Í dag er svo búið að vera allveg geggjað veður! Við kærustuparið erum að fara að skella okkur í ísbíltúr og svo jafnvel kósí göngutúr:) Það er allveg must að hætta alltaf að hanga inni í svona geggjuðu veðri!!! ekki allveg málið sko! og við gerum sko allt of mikið af því...

svo er ég líka búin að ákveða að ég ætla að hætta þessu sleni og fara að taka mig á í ræktinni... Fór tvisvar í seinustu viku og svo er ég að spá í að skella mér jafnvel í fyrramálið ef ég kíki ekkert út í kvöld. Allavega er stefnan að vera frekar róleg, annaðhvort bara kózý með kæró eða með Helgu vinkonu..

en allavegana skínandi sól úti, og dagurinn bíður8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 14:27:33 / anna

Konudagur

Vá hvað það er langt síðan ég fékk frí heila helgi!!! er búin að vera að vinna alla laugardaga síðan ég veit ekki hvenar!!! og núna  er ég í fríi, og kann það varla.. Hrökk upp í nótt og ætlaði að fara að stilla vekjaraklukkuna.. Líkamsklukkan ekki allveg að átta sig á því að ég fái að sofa út 2 nætur í röð... En það er geggjað nice!!

Skellti mér á djammið á föstudaginn, ekkert súpergengi með í för!! En það var geggjað skemmtilegt! Fórum fyrst í party hjá Unnari vin Hákons, og á seinustu stundu drógum við Heiðrósu systur hans með, sem var besta hugmynd í heimi!! Annars hefði ég örugglega verið geggjó einmanna allt partýið og hangandi utaní Hákoni!!! Allar stelpurnar sem voru þarna voru geggjað bestu vinkonur og svo ég... ekki skemmtilegast í heimi að koma í þannig hóp. En ég og Heiðrós spjölluðum geggjað mikið saman og svo var farið í bæinn og djammað til lokunar á Sólon..

Laugardagurinn fór í geggjaða leti, og endaði í söngvakeppni sjónvarpsins matarboði hjá tengdapabba.. Svo var bara farið heim og slappað af og horft á video með ástinni sinni.. ekkert djamm þetta laugardagskvöldið:)

er að gera það upp við mig hvort ég nenni að fara að baka bolludagsbollur eða ekki. Er allveg geggjað löt, en þær eru svo geggjað góðar að það er eila must!!

En allavega. hafiði það gott á Bolludag Öskudag og Sprengidag!! 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 15:09:58 / anna

GLIMMER ÞEMA Í AFMÆLI ALDARINNAR Á LAUGARDAGSKVELDIÐ!!!

Þið sem eruð að koma í party til mín á laugardagskvöldið..... það er GLIMMERÞEMA!!!!!!!!!!!!!!!!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 13:05:21 / anna

Myndir!

Nýjar myndir komnar inn;)

!Ƃ̌

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 12:27:50 / anna

Afmæli framundan?

Þá er komið að því... Ég er að verða ennþá eldri!
Mér finnst það eiginlega ekkert sniðugt, alltaf verið að minna mann á hvað maður er orðinn gamall, Kristín vinkona og Ágústa systir eru verðandi mæður, Helga og Ingi trúlofuð, ég byrjuð að búa, komin með bíl og íbúð og fjárhagsáhyggjur og samræmd sumarfrí, tvær kisur, og húsverkin... svo er maður búinn með skólann og er bara working lady...blahhhh!
En það er ekki allt slæmt við þetta, get ekki sagt að ég sé neitt annað en hamingjusöm:haha: Og er það ekki einmitt það sem maður er að sækjast eftir í lífinu.. er það ekki?
En þá verður maður að fara að skipuleggja afmæli.. var að spá í party næsta laugardagskvöld... hvernig líst fólki á það??  endilega látið mig vita..
Djammdrósin 22 ára... ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 00:43:51 / anna

!!!!!!!!SVEINSPRÓFIN BÚIN!!!!!!!!!!

Sveinsprófin eru búin! ég stóð í öllu ótrúlegt en satt ég stóð líka í litnum sem ég var með mestar áhyggjur af!!! er geggjað sátt við þetta, því ég var allveg viss um að liturinn hefði fellt mig... JEIIII!!!!! Fékk 7 í meðaleinkunn, 9 í bóklega prófinu og 8 í iðnteikningu svo þetta er allveg æðislegt. Það er líka talað um að maður fái 1-3 lægri einkunn í sveinsprófi en í skólaprófi. Ekki það að einkunninn fyrir litinn er ekki eikkað til að hrópa húrra fyrir, en allavega náði ég..fékk þar 5,33. Ég var svo hissa þegar þau sögðu mér að ég hefði náð prófinu..! Var allveg byrjuð að útskýra að ég hefði geymt litinn í bílnum fyrir prófið og það hefði verið 11 stiga frost um nóttina og þessvegna hefði liturinn ekki virkað eins og hann hefði átt að virka.... En mín bara náði samt;)
Þá getur maður allavega farið að halda upp á þetta með góðri samvisku, ekkert "kanski fell ég á sveinsprófinu og þá er svo hallærislegt að hafa haldið upp á að vera búin"

En er farin að sofa því Hákon elskan mín er kominn heim:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 19:21:23 / anna

helgin búin:)

Var búin að skrifa frekar langa færslu en allt datt út!!!!Q%$&#"$#%#$%# helv!!

allavegana góð helgi sem nýttist í margt og endaði á reyfarkaupum á útsölunni í zöru

hendi bráðum inn nokkrum myndum..

seeya!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 20:21:41 / anna

Einmannalegt föstudagskvöld

Þetta er nú búið að vera meiri dagurinn, byrjaði geggjað vel og svo fór hann versnandi eftir því sem leið á daginn.. En allt stefnir í kózýkvöld hjá henni Önnu einni heima...
Hákon er í Vísindaferð sem er víst aðaldæmið í Háskólanum, og kemur líklegast ekki heim fyrr en um 12 leitið, og stelpurnar ætla ekki að hittast fyrr en um 12 leitið... týpískt!! En þá er alltaf hægt að nota tímann og taka til. Frekar kjánalegt fyrir föstudagskvöld:(

En allavega þá tókum við Hákon til í gær í herberginu okkar, erum loksins búin að koma okkur fyrir þar, en mikið eftir enn í restinni af íbúðinni. en þetta kemur allt með kalda vatninu. svo er bara planið að fara að halda innflutnings- afmælis- útskriftar- partý, og er stefnan tekin á að það verði sameginlegt afmælis og innflutnings hjá mér og Hákoni og svo sér útskriftar einhverntíman seinna. Þá fáiði öll að sjá nýju íbúðina okkar;)

bara svona að láta heyra í mér;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 14:20:58 / anna

I'm back!!

Jæja já, nú er við hæfi að segja að ég verð alldrei góður bloggari.. en anyway, þá er ég allavega komin með netið núna svo það getur vel verið að eikkað fari að gerast hjá mér. Svo var Hákon sætastur að gefa mér myndavél í jólagjöf svo kanski maður fari að læra á að setja myndir inn svo þið getið skoðað;)

en þetta er það helsta sem hefur gerst hjá mér síðan seinast:

  • Allveg hætt að reykja í heila 6 mánuði og mun ekki byrja aftur;)
  • fór í 4 bekkinn í hárgreiðslu og kláraði hann dimmiteraði og gekk æðislega vel
  • Kláraði samninginn minn sem nemi svo þeim parti ævinnar er lokið!
  • Fór á sveinalaun;)
  • Fór til London babe með vinnufélögunum og skelltum okkur á townið og versluðum frá okkur allt vit á Oxford, um leið og við fórum á rosa flotta og stóra hárgreiðslusýningu. Allt geggjað flott! 
  • Fluttum úr litlu kitrunni okkar á Bergþórugötunni í 3 herb íbúð í Stórholti:) (nú er nóg komið af flutningum!)
  • Tókst í fyrsta skipti að skemmta mér vel á Gamlárs!
  • Var ein heima með kisunum um jólin:(
  • fór í sveinspróf seinasta laugardag og held ég hafi mögulega fallið í einu :cry: (helv litur að skemmast í frosti!!!!!!!) en veit það ekki fyrr en næsta miðvikudag...svo krossleggjum fingurna:$
  • Hákon byrjaður í háskólanum í viðskiptafræðinni og er geggjó learning babe!!

Þetta er allt að gerast segi ég bara, og endilega fylgisti með mér og vinkonum okkar á www.supergengid.tk en þar eru stelpurnar aðeins duglegri að skella inn myndum og fréttum af okkur skvísunum...

þangað til næst;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Leitarbox

Dagsetning
9. febrúar 2012
Vinnan